Samanburður við þjóðskrá - persónuskilríki
Þegar sótt er um vegabréf skal ávallt framvísa viðurkenndum persónuskilríkjum með mynd:
- Eldra vegabréf.
- Ökuskírteini.
- Nafnskírteini með mynd.
Ef umsækjandi getur ekki framvísað opinberu skilríki verður starfsmaður að leggja mat á þau stuðningsgögn sem umsækjandi leggur fram svo sem bankakort og önnur þau gögn sem umsækjandi kann að hafa undir höndum. Ef umsækjandi getur ekki með fullnægjandi hætti sannað á sér deili, er heimilt að gefa honum kost á að kveða til tvo lögráða einstaklinga, sem geta gert grein fyrir sér á fullnægjandi hátt og skulu þeir votta og staðfesta með undirskrift sinni að umsækjandi sé sá sem hann segist vera, sjá eyðublað.
Ekki má gefa út vegabréf nema umsækjandi geti gert fullnægjandi grein fyrir sér og lagt fram nauðsynlegar upplýsingar fyrir umsókn.
Um ritun nafns.