Breytingar á nöfnum
Nafnbreytingar má hver maður aðeins gera einu sinni nema sérstakar ástæður séu fyrir hendi.
Nýtt nafn
17 ára og yngri
Forsjármenn þurfa að sækja um nafnbreytingar. Hafi barn náð 12 ára aldri skal það einnig skrifa undir umsóknina.
Beiðnir um nafnbreytingar til Þjóðskrár Íslands
Dæmi um nafnbreytingar, breyting á ritun nafns, breyting á kenninafni ofl. Hægt er að sækja um þessar breytingar hjá Þjóðskrá Íslands. Eyðublöðin eru þessi:
- Beiðni um breytta ritun nafns án þess að um sé að ræða eiginlega nafnbreytingu (maður 18 ára og eldri)
- Beiðni um breytta ritun nafns án þess að um sé að ræða eiginlega nafnbreytingu (barn yngra en 18 ára)
- Beiðni um breytingu á kenninafni manns 18 ára og eldri
- Beiðni um breytingu á kenninafni barns yngra en 18 ára
- Beiðni um breytingu ættarnafns í millinafn samkvæmt 7. gr. mannanafnalaga (maður 18 ára og eldri)
- Beiðni um breytingu ættarnafns í millinafn samkvæmt 7. gr. mannanafnalaga (barn yngra en 18 ára)
- Beiðni um að ófeðrað barn verði kennt til stjúpföður síns
- Beiðni um að ófeðrað barn verði kennt til afa síns