Venjulegt útlit Breyta stillingum

Flutningur innanlands

Eyðublöð

Flutning skal tilkynna innan 7 daga og eru til þess þrjár leiðir.

  1. Netskil (sjá upplýsingar um rafræn skjalaskil á Island.is). Þessi eyðublöð eru merkt með tákninu . Vistið skjalið á tölvunni og smellið hér til að skila. Undirritun er óþörf, en í stað hennar þarf viðkomandi að auðkenna sig með rafrænu skilríki á debetkorti eða veflykli Ríkisskattstjóra.
  2. Bréfapóstur. Prentið út eyðublaðið, undirritið og sendið í pósti á Þjóðskrá Íslands, Borgartúni 21, 105 Reykjavík
  3. Bréfasími. Prentið út eyðublaðið, undirritið og sendið í bréfasíma 569 2949.

Nánar um netskil

Rafræn skjalaskil  

Námsmenn

Námsmenn sem dveljast í öðru sveitarfélagi vegna skólagöngu, geta haldið lögheimili í heimabyggð. Beiðni þar um ritist í athugasemdum. Vottorð frá skóla verður að fylgja.

Sambúð

Við skráningu í sambúð skal fylla út sérstakt eyðublað sem báðir aðilar undirrita. Hægt er að nálgast eyðublaðið á netinu "Beiðni um skráningu sambúðar í þjóðskrá".

Sambúðarslit

Sambúðaraðilar, sem eiga börn saman, verða að hafa gengið frá forsjá þeirra hjá sýslumanni eða fyrir dómi, ella er flutningstilkynning ekki tekin til greina.

17 ára og yngri

Tilkynningu þarf að fylgja skriflegt samþykki forsjármanns/manna.

Annað hjóna flytur

Taka skal fram í athugasemd ef um fyrirhugaðan skilnað er að ræða. Ef hjón eru að taka upp samvistir á ný, t.d. eftir skilnað að borði og sæng, þá tilgreinist það í athugasemdum.

Útlönd

Þeir sem flytja til og frá Norðurlöndunum þurfa að tilkynna flutninginn hjá hlutaðeigandi skráningarskrifstofu (skrifstofu í viðkomandi sveitarfélagi) í því landi sem flutt er til. Þeir sem flytja til og frá öðrum löndum fylla út "Flutningstilkynning innanlands" og setja þá viðkomandi land sem stað sem flutt er frá eða til. Þeir sem búsettir eru erlendis geta skráð umboðsmann á Íslandi í þjóðskrá. Hægt er að senda þá beiðni með tölvupósti. Tilgreina þarf nafn, kennitölu og síma umboðsmannsins.

Fyrirtæki

Tilkynningar vegna flutnings póstfangs/lögheimili fyrirtækja/félaga er að finna á vef Ríkisskattstjóra www.rsk.is eyðublað nr. 17.40

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English