Venjulegt útlit Breyta stillingum

Aðgangur að þjóðskrá

Hinn 1. maí 2004 var lokað fyrir aðgang að þjóðskrá í opnum uppflettikerfum á vefnum. Með þessu var brugðist við fjölda athugasemda einstaklinga um að þjóðskráin á vefnum væri of aðgengileg og opin hverjum sem er, hvar sem er í heiminum. Viðbrögð Þjóðskrár voru tvenns konar. Í stað uppflettingar í opnum kerfum á vefnum verður aðgangur heimilaður í lokuðum kerfum þeirra fyrirtækja sem þess óska fyrir viðskiptamenn sína. Ennfremur var ekki lengur unnt að leita í skránni á vefnum eftir heimilsfangi.

Þannig mun áfram verða hægt að fletta upp í þjóðskrá í kerfum sem eru með aðgangsstýringu eins og til dæmis gildir um heimabanka. Viðskiptamenn banka og sparisjóða geta því flett upp í þjóðskrá í heimabönkum gefi hlutaðeigandi banki kost á því. Þá munu fyrirtækin Skýrr hf. (http://www.skyrr.is/; sími 569 5100) og Lánstraust hf. (http://www.lt.is/; sími 550 9600) veita aðgang að þjóðskrá í uppflettikerfum. Fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum stendur áfram til boða að fá nafnaskrár þjóðskrár til notkunar við starfsemi sína.

Gerðar hafa verið nokkrar breytingar á formi þjóðskrár, sem viðskiptamönnum er afhent á tölvutæku formi. Viðskiptamenn geta nú fengið afhenta grunnskrá þjóðskrár sem í eru upplýsingar um nafn einstaklings, kennitölu, heimili (þgf), póstnúmer, póststöð, bannmerkingu og ef skráð er nafn og póstfang umboðsmanns þess sem búsettur er erlendis. Þetta eru minni upplýsingar en áður voru afhentar úr þjóðskrá, en við þessa breytingu voru höfð í huga ýmis persónuverndarsjónarmið.

Viðskiptamenn snúi sér til Þjóðskrár Íslands og geri við hana samning um afnot þjóðskrár og miðlarar annast síðan afhendingu skrárinnar. Fyrirtækin sem hafa þegar gert miðlarasamning við Þjóðskrá Íslands eru:

DK hugbúnaður ehf., Hlíðarsmára 17, 201 Kópavogur - sími 510 5800 - dk@dk.is
Dreifing heildarskráa og uppflettiaðgangur
Ferli ehf., Hlíðasmára 8, 201 Kópavogur - sími 544 5888 - ferli@ferli.is
Dreifing heildarskráa og XML aðgangur
Landsteinar-Strengur hf., Ármúla 7, 108 Reykjavík - sími 550 9000 - sala@strengur.is
Dreifing heildarskráa og uppflettiaðgangur.
Lánstraust hf., Brautarholti 10-14, 105 Reykjavík - sími 550 9600 - adgangur@LT.is 
Dreifing heildarskráa og aðgangur að öflugri leitarvél (uppflettikerfi) tengdri þjóðskrá.
Skýrr hf., Ármúla 2, 108 Reykjavík - sími 569-5100 - skyrr@skyrr.is
Dreifing heildarskráa, XML og aðgangur að þjóðskrá í uppflettikerfi

Verð frá 1. janúar 2009 er kr. 47.500 fyrir grunnskrá þjóðskrár m.v. mánaðarlegar uppfærslur. Kjósi viðskiptamenn að uppfæra skrána daglega er gjaldið kr. 71.200 á ári. Viðskiptamenn sem eru með fleiri en eina starfsstöð/útibú greiða kr. 17.800 árgjald fyrir hverja viðbótarstarfsstöð verði skráin uppfærð mánaðarlega en kr. 21.400 verði skráin uppfærð daglega.

Telji viðskiptamaður að hann þurfi viðbótarupplýsingar úr þjóðskrá vegna starfsemi sinnar, þarf hann að senda inn beiðni til Þjóðskrá Íslands þar um. Þau atriði sem koma til greina eru m.a. fjölskylduupplýsingar (hjúskaparstaða, makakennitala, fjölskyldunúmer og kyn), ríkisfang og fæðingarstaður. Beiðni þarf að vera skrifleg með ítarlegum rökstuðningi. Þjóðskrá Íslands ákvarðar síðan hvort viðbótarupplýsingar skuli afhentar. Verð á þjóðskrá með viðbótarupplýsingum verður kr. 71.200 á ári m.v. mánaðarlegar uppfærslur en m.v. daglegar kr. 106.800.

Athugið að hægt er að leita í fyrirtækjaskrá á vef ríkisskattstjóra

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English