Þeir sem óska eftir að gera athugasemdir við endurmetið fasteignamat fyrir árið 2011 verða að fylla út og senda inn þar til gert eyðublað. Eyðublaðið er opið fyrir innslátt í reiti.
Tvær leiðir eru til að skila eyðublaðinu
- Netskil (sjá upplýsingar um rafræn skjalaskil á Island.is). Vistið skjalið á tölvunni og smellið hér til að skila. Undirritun er óþörf, en í stað hennar þarf viðkomandi að auðkenna sig með rafrænu skilríki á debetkorti eða veflykli Ríkisskattstjóra.
- Bréfapóstur. Prentið út eyðublaðið, undirritið og sendið í pósti á Þjóðskrá Íslands, Borgartúni 21, 105 Reykjavík.
Nánar um netskil
Eyðublað fyrir athugasemdir við endurmetið fasteignamat 2011
Upplýsingar um netskil (rafræn skjalaskil) á Island.is