Fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum stendur til boða að fá nafnaskrá þjóðskrár til notkunar við starfsemi sína. Sækja þarf um aðgang og gera samning við Þjóðskrá Íslands áður en gögn verða aðgengileg. Umsækjendur fylla út eyðublað og senda til Þjóðskrár Íslands. Á grundvelli umsóknar er gerður samningur um rafræn afnot nafnaskrár þjóðskrár og miðlarar annast afhendingu gagna í framhaldi af því. 

Aðgangur að þjóðskrá er tvenns konar

  • Samningur um rafræn afnot af nafnaskrá þjóðskrár. Heildarskrá 1. desember ár hvert er afhent notanda og mánaðarlegar eða daglegar uppfærslur allt eftir ósk umsækjanda.
  • Samningur um uppfletti í nafnaskrá þjóðskrár í lokuðu uppflettikerfi miðlara með aðgangsstýringu.

Í báðum tilvikum þarf að fylla út umsókn og senda til Þjóðskrár Íslands áður en aðgangur er heimilaður.

X-801 Umsókn um rafrænan aðgang að nafnaskrá þjóðskrár  

Eftirtalin fyrirtæki eru með miðlarasamning við Þjóðskrá Íslands:

Gjaldskrá Þjóðskrár Íslands vegna leyfa fyrir rafræn afnot af þjóðskrárgögnum

Fyrirtækjaskrá á vef ríkisskattstjóra

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English