19.03.2010

Velta á markaði

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu frá 12. mars til og með 18. mars 2010 var 51. Þar af voru 36 samningar um eignir í fjölbýli, 11 samningar um sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1.353 milljónir króna og meðalupphæð á samning 26,5 milljónir króna.

Á sama tíma var 6 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum*. Þar af voru 4 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 211 milljónir króna og meðalupphæð á samning 35,2 milljónir króna.

Á sama tíma var 2 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af var 1 samningur um eignir í fjölbýli og 1 samningur um sérbýli. Heildarveltan var 34 milljónir króna og meðalupphæð á samning 16,8 milljónir króna.

Á sama tíma var 6 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu**. Þar af var 1 samningur um eignir í fjölbýli og 5 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 155 milljónir króna og meðalupphæð á samning 25,8 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Velta á markaði vikuna 12. mars til og með 18. mars
Samtals Fjölbýli Sérbýli Aðrar eignir Meðaltal sl.
12 vikna
Höfuðborgarsvæðið
Reykjavík 22 16 4 2 23
Seltjarnarnes 0 0 0 0 0
Mosfellsbær 3 0 2 1 2
Kópavogur 14 12 2 0 8
Hafnarfjörður 7 6 0 1 6
Garðabær 5 2 3 0 3
Álftanes 0 0 0 0 0
Samtals 51 36 11 4 42
Velta (millj. kr.) 1.353 1.259
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 26,5 29,9
Suðurnes 6 0 4 2 4
Velta (millj. kr.) 211 163
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 35,2 41,5
Akureyri 2 1 1 0 4
Velta (millj. kr.) 34 84
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 16,8 20,6
Árborgarsvæðið 6 1 5 0 3
Velta (millj. kr.) 155 62
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 25,8 20

* Sveitarfélögin Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði, Garður og Vogar.
** Sveitarfélögin Árborg, Hveragerði og Ölfus.

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English