16.03.2010

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 302,1 stig í febrúar 2010 (janúar 1994=100) og lækkar um 0,4% frá fyrra mánuði. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 2,2%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún lækkað um 3,8% og lækkun síðastliðna 12 mánuði var 10%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun fasteignaverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Fasteignaskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.

Ef þú vilt skoða tímaröð fyrir vísitöluna, þá getur þú smellt hér til að skoðað gögnin í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum eru heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Vísitala íbúðarverðs á höfuðborgarsvæðinu fyrir mars 2010 verður birt 15. apríl n.k.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English