12.03.2010

Velta á markaði

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 5. mars til og með 11. mars 2010 var 52. Þar af voru 36 samningar um eignir í fjölbýli, 12 samningar um sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1.596 milljónir króna og meðalupphæð á samning 30,7 milljónir króna.

Á sama tíma var 5 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum*. Þar af voru 3 samningar um eignir í fjölbýli og 2 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 101 milljón króna og meðalupphæð á samning 20,2 milljónir króna.

Á sama tíma var 3 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Það voru samningar um eignir í fjölbýli. Heildarveltan var 60 milljónir króna og meðalupphæð á samning 20 milljónir króna.

Á sama tíma var 3 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu**. Þar af var 1 samningur um eignir í fjölbýli og 2 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 66 milljónir króna og meðalupphæð á samning 21,8 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Velta á markaði vikuna 5. mars til og með 11. mars
Samtals Fjölbýli Sérbýli Aðrar eignir Meðaltal sl.
12 vikna
Höfuðborgarsvæðið
Reykjavík 31 23 5 3 24
Seltjarnarnes 1 1 0 0 1
Mosfellsbær 2 1 0 1 2
Kópavogur 10 6 4 0 8
Hafnarfjörður 5 3 2 0 5
Garðabær 3 2 1 0 3
Álftanes 0 0 0 0 0
Samtals 52 36 12 4 43
Velta (millj. kr.) 1.596 1.272
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 30,7 29,9
Suðurnes 5 3 2 0 4
Velta (millj. kr.) 101 148
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 20,2 41,2
Akureyri 3 3 0 0 4
Velta (millj. kr.) 60 96
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 20 21,8
Árborgarsvæðið 3 1 2 0 3
Velta (millj. kr.) 66 51
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 21,8 18,4

* Sveitarfélögin Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði, Garður og Vogar.
** Sveitarfélögin Árborg, Hveragerði og Ölfus.

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English