03.03.2010

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í febrúar 2010

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í febrúar 2010 var 186. Heildarvelta nam 5,8 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 31,1 milljón króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 3,2 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 1,4 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 1,2 milljörðum króna.

Þegar febrúar 2010 er borinn saman við janúar 2010 fjölgar kaupsamningum um 18,5% og velta eykst um 27,5%. Í janúar 2010 var þinglýst 157 kaupsamningum, velta nam 4,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 28,9 milljónir króna.

Þegar febrúar 2010 er borinn saman við febrúar 2009 fjölgar kaupsamningum um 28,3% og velta eykst um 33,9%. Í febrúar 2009 var þinglýst 145 kaupsamningum, velta nam 4,3 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 29,8 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 41 í febrúar 2010 eða 23,2% af öllum samningum. Í janúar 2010 voru makaskiptasamningar 35 eða 25,7% af öllum samningum. Í febrúar 2009 voru makaskiptasamningar 39 eða 31,2% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greitt með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Tafla 1. Samanburður á janúar 2010 og febrúar 2010

Janúar 2010

Febrúar 2010

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

2.407

113

3.183

147

32,2%

30,1%

Sérbýli

940

23

1.358

30

44,4%

30,4%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

1.188

21

1.244

9

4,7%

-57,1%

Samtals

4.536

157

5.785

186

27,5%

18,5%

 

Tafla 2. Samanburður á febrúar 2009 og febrúar 2010

Febrúar 2009

Febrúar 2010

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

2.518

104

3.183

147

26,4%

41,3%

Sérbýli

819

22

1.358

30

65,9%

36,4%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

983

19

1.244

9

26,6%

-52,6%

Samtals

4.319

145

5.785

186

33,9%

28,3%

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

Febrúar 2009

Janúar 2010

Febrúar 2010

Breyting milli ára

 Breyting milli mánaða

Samningar

125

136 

177

41,6%

30,1% 

Makaskipti eða  lausafé

44

35 

41

-6,8%

17,1% 

Makaskipti

39

35 

41

5,1%

17,1% 

Lausafé

7

-

-

Hlutfall

31,2%

25,7% 

23,2% 

-

-

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English