05.02.2010

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í janúar 2010

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í janúar 2010 var 157. Heildarvelta nam 4,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 28,9 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 2,4 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 0,9 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 1,2 milljörðum króna.

Þegar janúar 2010 er borinn saman við desember 2009 fækkar kaupsamningum um 25,6% og velta minnkar um 54,1%. Í desember 2009 var þinglýst 211 kaupsamningum, velta nam 9,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 46,8 milljónir króna.

Þegar janúar 2010 er borinn saman við janúar 2009 fjölgar kaupsamningum um 35,3% og velta eykst um 29,5%. Í janúar 2009 var þinglýst 116 kaupsamningum, velta nam 3,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 30,2 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 35 í janúar 2010 eða 25,7% af öllum samningum. Í desember 2009 voru makaskiptasamningar 56 eða 29% af öllum samningum. Í janúar 2009 voru makaskiptasamningar 30 eða 30% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greitt með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Tafla 1. Samanburður á desember 2009 og janúar 2010

Desember 2009

Janúar 2010

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

3.589

151

2.407

113

-32,9%

-25,2%

Sérbýli

1.545

37

940

23

-39,1%

-37,8%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

4.748

23

1.188

21

-75,0%

-8,7%

Samtals

9.882

211

4.536

157

-54,1%

-25,6%

 

Tafla 2. Samanburður á janúar 2009 og janúar 2010

Janúar 2009

Janúar 2010

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

2.116

82

2.407

113

13,8%

37,8%

Sérbýli

687

17

940

23

36,9%

35,3%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

699

17

1.188

21

70,1%

23,5%

Samtals

3.502

116

4.536

157

29,5%

35,3%

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath á bara við um íbúðarhúsnæði)

Janúar 2009

Desember 2009

Janúar 2010

Breyting milli ára

 Breyting milli mánaða

Samningar

100

193 

136

36%

-29,5% 

Makaskipti eða  lausafé

33

58 

35

6,1%

-39,7% 

Makaskipti

30

56 

35

16,7%

37,5% 

Lausafé

3

-

-

Hlutfall

30%

29% 

25,7% 

-

-

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English