29.01.2010

Velta á markaði

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 22. janúar til og með 28. janúar 2010 var 42. Þar af voru 32 samningar um eignir í fjölbýli, 6 samningar um sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 927 milljónir króna og meðalupphæð á samning 22,1 milljón króna.

Á sama tíma var 2 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum*. Þar af var 1 samningur um eignir í fjölbýli og 1 samningur um sérbýli. Heildarveltan var 33 milljónir króna og meðalupphæð á samning 16,5 milljónir króna.

Á sama tíma var 1 kaupsamningi þinglýst á Akureyri  og var upphæð hans 31 milljón króna.

Á sama tíma var 7 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu**. Þar af var 1 samningur um eignir í fjölbýli og 6 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 142 milljónir króna og meðalupphæð á samning 20,3 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Velta á markaði vikuna 22. janúar til og með 28. janúar
Samtals Fjölbýli Sérbýli Aðrar eignir Meðaltal sl.
12 vikna
Höfuðborgarsvæðið
Reykjavík 29 23 4 2 21
Seltjarnarnes 2 1 1 0 1
Mosfellsbær 1 0 1 0 2
Kópavogur 5 4 0 1 10
Hafnarfjörður 3 3 0 0 5
Garðabær 2 1 0 1 5
Álftanes 0 0 0 0 0
Samtals 42 32 6 4 43
Velta (millj. kr.) 927 1.873
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 22,1 43,2
Suðurnes 2 1 1 0 3
Velta (millj. kr.) 33 112
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 16,5 37,3
Akureyri 1 0 1 0 4
Velta (millj. kr.) 31 87
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 31 20,5
Árborgarsvæðið 7 1 6 0 3
Velta (millj. kr.) 142 54
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 20,3 19,2

* Sveitarfélögin Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði, Garður og Vogar.
** Sveitarfélögin Árborg, Hveragerði og Ölfus.

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English